[föstudagur, maí 20, 2005]
ég er fegin...
það er eigilega bara soldið gott á okkur að komast ekki áfram í júróvision, fjölmiðlar á íslandi eru hrokafullir og koma af stað einhverjum múgæsing í kringum svona keppnir...
En svo er annað mál að ísland ætti bara að vera fegið að vera ekki í hóp þessara laga í keppninni sjálfri, nánast öll lögin eru handónýt, og ekki bætir pólski fabíóin sjóvið..
já...en allavega...góða helgi til allra ;)
por hEIdi * 16:16
____________________________
|
[mánudagur, maí 09, 2005]
ég myndi alveg vilja fá meira umburðalyndi...
shit og fokk hvað ég get orðið brjáluð á fólki sem er leiðilegt, heimst og óþolandi...
...maður er kannski í vinnunni, og þá kemur einhver bitur grey kona á fimmtugsaldri og er með vesen, og meira vesen og svo leiðindi oná það og allt útaf því að maðurinn hennar er feitur og krakkarnir kol brjálaðir og kötturinn pissaði í rúmið hennar.
...allavega þá er lífið vont við hana og hún ætlar að láta það bitna á öllum sem fyrir verða.
...Þessi kona er líka hvar sem ég fer, hún er uppskrúfuð í bankanum, í búðinni og sérstaklega heldur hún til á tryggingamálastofnun...
maður ætti kannski að gefa henni ferð til Balí til að gleðja hana og losna við hana í leiðinni...allavega höndla ég hana ekki lengur...
ég er að fara að hætta í vinnunni minni í mai....
por hEIdi * 20:45
____________________________
|
[miðvikudagur, maí 04, 2005]
Humar og Leti...
Humar fer vel með öllu...sérstaklega bjór og hvítlauksbrauði. Í gær eldaði Gunni einn slíkan handa mér og var árangurinn svo góður að ég get ekki hætt að hugsa um hann í þessum einstaklega laangdregna lífsleiknitíma. En í kvöld er annað uppi á teningnum, en þá ætla þær frökenar Hrefna og Kolla fix að elda eitthvað sem inniheldur kjúkling og hrísgrjón handa mér...en tilefnið er auðvitað America's next top model og svo party sem littli busabekkurinn okkar er að halda....LiFi lJósið í SkeIfuNNi!
por hEIdi * 13:35
____________________________
|
[fimmtudagur, febrúar 17, 2005]
Fyrir mínar sakir vil ég bara segja að strippararnir á konuKvöldinu voru alveg ýkt sætir og getnaðarlegir...og Góðir dansarar maður. Þetta eru örugglega svona strákar sem hafa alltaf verið í ræktinni og stundað freeStyle dans síðan þeir fóru á gelgjuna. mjög Krúttlegir. Þú hefðir nú átt að vera þar Kolla mín gallupStelpa, þeir sýndu meira segja á sér typpið..híh
En allavega, er að fara á stefnumót við barinn minn...við ætlum að fá okkur smá bjór og svona
....RóLeg samt...
por hEIdi * 21:53
____________________________
|
[mánudagur, febrúar 14, 2005]
jæjapæja,
Nú erum við kolbrún í m10 að tölvast og erum á leið í Yóga klukkan níu í fjósinu. Heilsudóterí á mánudagskvöldi í febrúar...gott líf
por hEIdi * 20:47
____________________________
|
[föstudagur, maí 21, 2004]
í dag er föstudagur, og ég er búin að læra síðan klukkan tólf á hádegi...sem er gott afþví að þá er ég búin að vera dugleg.
Í gær gerðist ekki mikið í lærdómi sökum þynnku og vinnu, en á miðvikudagskvöldið var farið út og "dansað", þá voru afrek kvöldsins meðal annars:
ég mætti ekki í hresst bekkjarpartí(var samt í símasambandi)
stal engum pennum
stal engum upptökurum
dansaði við eurovisionlög sem dj.palli spilaði ótt og títt
lét margréti bíða eftir mér til hálfeitt-ekki góð vinkona ég-
datt harkalega í gólfið með kalla bróður hennar elínar
vaknaði með sár á löppinni sem ég hef enga skýringu á
en engu að síður gott kvöld....
por hEIdi * 19:26
____________________________
|
[mánudagur, maí 10, 2004]
góður dagur...
ég & elín girlfriend vorum duglegar í morgun og gerðum glæsilegan bækling, fengum svo frí í stjórnmálafræði...og líka restina af deginum því við ákváðum að það yrði líka frí í íslensku...já, æskan full metnaðar í dag.
Helgin leiddi ýmislegt í ljós, allir voru hressir á hamrahátíðinni, mjööög hressir og ekki stilltir, öll siðprýði fauk út um gluggann, en það er nú bara besta mál. Hver hefur gaman af siðprýði?
einnig á amma mín góða afmæli í dag og er annaðhvort 67 eða 68 ára. En nú ríkir hjá mér og John mínum Lennon mjög angurvæeð stemming ásamt laginu Love...
sé þig eftir þrjá daga kolla sæta ;*
heiða
por hEIdi * 13:35
____________________________
|
[sunnudagur, apríl 04, 2004]
play it again sam
er að fara á kostum í trivial....gerði allavega jafntefli við margréti sem gaf mér þrjá sénsa....
takk beygla
por hEIdi * 00:15
____________________________
|
[fimmtudagur, apríl 01, 2004]
ég var mér til mikillar mæðu að komast að því að ég þarf að skila íþróttaritgerð.....á morgun! þar fer mikið af mínum dýrmæta tíma í ruslið í dag. en ég hef ákveðið að skrifa um heilbrigt líferni.
djöfull verður það skemmtilegt aflestrar.
-enjoy sigurpáll dear-
-heiða-
por hEIdi * 16:35
____________________________
|
[mánudagur, mars 29, 2004]
ég fór að sjá
the passion of the christ í gær, og varð fyrir frekar miklum vonbrigðum, Því þó að myndin sé vel gerð og ágætlega leikin, þá er hún ekkert svo tilkomumikil. mæli ekkert sérstaklega með henni.
Reyndar er atriðið með hrafninn flott...en ógéðslegt
En nú er góður dagur, dagur þar sem fuglarnir syngja og sólin skín, bæði úti og í hjarta mínu. -let's dance-
por hEIdi * 15:41
____________________________
|